Ertað tala við mér????

Peng

08.10.2008 14:46:33 / Helgad

Coca loca dancing like a radio

Hahahaha ég varð að henda þessu inn, Erna benti mér á þessa síðu og þvílíka snilldin8|:haha:
En já Svanný mín við verðum að hafa hitting, það þarf eiginlega bara að finna lausan dag hand öllum og þá er restin bara leikur einn8)
En já er enn á lífi, seinasti dagurinn í vinnunni var í gær:$ doldið erfitt en maður kíkir bara í heimsókn á Pengsann minn og hina í eldhúsinu.
Nenni eiginlega ekki að ræða kreppumálin en hvað er í gangi eiginlega dísúss
ok heyrumst later og Svanný finnum dag:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.08.2008 15:06:17 / Helgad

Please don't go don't goooowo

Robbi minn er farinn frá eyjunni 8| 
En ég verð vikunni lengur, við fórum öll fjölskyldan á skotsvæðið í gær og allir tóku hundana með og leyfðu þeim að hlaupa um, síðan tók Stefnir upp haglarann og dýrin bara með skottið á milli lappanna og beint upp í jeppa, Forrest fór meira að segja með þeim í skottið og sátu þeir eins og álkur þarna:haha:
En þetta var alveg mega stuð og heyrnin næstum farin, tók nokkrar myndir af fólkinu, sérstaklega fyndin mynd af Fanney þar sem hún er með byssuna í höndunum að miða og síðan önnur mynd þar sem hún var búin að skjóta og að drepast í öxlinni við kippinn:lol: En þetta er búið að vera ótrúlega kósý hérna hjá mömmslu og brósa.

Spjaggla seinna
kv Helga

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.07.2008 17:37:23 / Helgad

Já Sæll!!!

Long tæm nó sí:d
Jæja kvart og kvein borgar sig;)
Er búin að vera í afmælisgjafakaupum..... Robbi horfði bara á mig og spurði afhveju ég væri að kaupa sona mikið af gjöfum8|
Valtýr og Erna eiga afmæli 2 ágúst er í stórum vandræðum með Ernu eða bara lappirnar á mér, er ekki með mikið úthald þessa dagana....
Pabbi á afmæli 12 ágúst búin með hann
Stefán á afmæli 19 ágúst þannig þetta er pretty big mánuður

Þannig ég er ekki með kaupæði þótt ég sé búin að hanga í smáralindinni og Kringlunni seinustu vikur:$

Síðan eru morgnarnir mjög skemmtilegir því ég vakna yfirleitt hugsandi um Hlöllabát heh:^)
Ef Hómer Simpsons væri stelpa þá kæmi ég vel til greina

Síðan eru það eyjar 11 ágúst jeij hlakka til að hitta yndislegu fjösk mína

Until next
Helgad



» 3 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 14:13:12 / Helgad

Bið að heilsa amigos capi

Já sælar baunaspírur var að koma frá tannsa ...... vá hvað það kostar mikið að fara, eitt gott ráð frá mér : ekki bíða of lengi með að fara til tannsa það er bull........:^)

Svanfríður þú ert vinsamlegast beðin um að koma að póstkassanum og sýna mér bréfið sem ég er búin að fá frá þér ég bara finn það hvergi;)

Síðan er ég svo mikill lúði ég tók upp pennann um daginn og ákvað að skrifa bréf til bróður pabba sem býr í Danmark hehehe þetta er ekki kúl en ég er bara svo mikill auli í síma, geri sko allt til að forðast vandræðalega þögn heh þannig ég ákvað að senda línu en hef ekki fengið svar. 8|

Nú er Auður komin upp á flugvöll og er á leiðinni til Kanarí, Hörður fer með henni og hún er svo stressuð því hann er að hitta pabba hennar og föðurfólkið í fyrsta skiptið hehehe. Þau eru klikkuð ef þeim líkar ekki vel við hann.:haha:

Já Svanný síðan er Auður að fara frá okkur til að vinna á Tannlæknastofu, þannig mig vantar þig til mín þegar þú kemur og komdu fljótt....8)

Jæja heyri í ykkur seinna og reyni að safna slúðri á meðan:haha:

Kv. Helga D


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 14:05:04 / Helgad

Hallo hallo ... góðan daginn.. good morning

Já blogg frá mér again!!!!
Ég er að reyna að gera mig tölvuvædda aftur I can do it......

Lára tjékk it: http://www.youtube.com/watch?v=Cc0ZSJihb4M

Og ein snilldin fyrir ykkur hin : http://www.youtube.com/watch?v=bBWkPRSE-W4

Maðurinn er bara snilld, Jóa helst take a look!!:lol::d:haha:

En já er búin að vera eitthvað lasin sem betur fer á frídegi hehe en það sökkar samt að vera með hor niðrá axlir slímug augu og hnerra í annað hvert skipti þegar maður er að tala við einhvern. Ok kannski smá ýkt en mér líður samt sona....
Bráðum koma páskarnir og þá skelli ég mér í bæ óttans:)hihi

Svanný yndislegt að fá línu frá þér keep up the good work, ég sef næstum við póstkassann ég er svo spennt að fá bréf 8|;)
Jæja hear you later
Sturla Magnuson Gimli



» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 20:10:08 / Helgad

Er Myspace málið???

Jæja fékk þær fréttir í dag að ég væri tæknilega fötluð, :$


Frakkland er enn á lífi:^) Svanný mín ég lofa að fara að gera eitthvað í þessu Myspace máli þetta gengur ekki, síðan fékk ég póstkort frá þér, sá það þegar ég var að fara í vinnuna og síðan kom ég heim og sá að það var búið að tæma póstkassann, Erna dugleg en NEI þá tæmdi einhver póstkassann og örugglega hent dótinu, þannig ég var sú eina sem sá kortið en að sjálfsögðu sagði ég öllum frá því. ég sakna þín svo fáránlega mikið8|

En já nóg af væli, allt fínt að frétta, þarf að gera upp hvort ég mæti á þetta árgangsmót, ég nebbla gæti fengið boðskort til að fara á árgangsmót á króknum hehe jeij ég held að það gæti verið stuð, hitta Ingu mína Skagfjörð again8)

En já bið að heilsa

Kv Helga Magnuson Gimli





» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 15:41:07 / Helgad

Já Sæll.....

Lára mín og Svanný til hamingju með útskriftina, ég biðst innilega afsökunar að svíkja ykkur sona og skella mér bara til eyja eins og það sé einhver skárri kostur. :(

Það hefði nú verið stuð að sjá ykkur og sérstaklega kjólana ykkar hehheh.;)

Anyway ég er komin með netið heima jebbbb, Andri kom í heimsókn til Ernu og ég fór eitthvað að minnast á netið því ég komst ekki á netið eftir að ég keypti þráðlaust netkort, netsnúru og allt, þannig hann leit á þetta og það voru 202 vírusar í tölvunni, datt mér það í hug neibbb, þannig kjellinn reddaði þessu fyrir kjellinguna. 8|

Þannig nú fer mín að henda inn fullt af myndum og já Svanný myndin af þér og fótboltagaurnum fer inn heheheh:P

Annars er bara allt fínt að frétta við Erna keyrðum á Selfoss á miðvikudaginn og lentum í þoku og roki dauðans, fórum að heilsa upp á ömmu Dóru og fengum nammikaffi og laufabrauð hjá henni, síðan eftir bílferð dauðans þá fórum við í sjóferð dauðans úff :lol:

Svo byrjar Erna að fá kvef um leið og við komum hingað og nú er ég búin að liggja niðri síðan á föstudag jeij þetta er megastuð...:$.

Ég fer síðan frá eyjum 29. des því við förum nottla til Kanarí 2.jan þarf að hafa tíma til að skipta um töskur og shit:haha:

 Jæja hilsen fra Magnussen


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 14:56:29 / Helgad

Dikta rúlar

Hey there.... okay ég veit ég er léleg og löt en án gríns núna fer þetta allt að koma, er komin með sona netkort og nú vantar mig bara einhverjar tölur til að komast á netið jayyyyy...

 Erna fór til eyja í gær ;( jebb til að heimsækja family og lækna bílinn sinn, hún keyrði hann næstum bremsulausan til Þorlákshafnar, sem betur fer var ég sofandi því annars hefði hún fengið í kringum hundrað símtöl frá mér, maður fékk smá panic at the disco... 

Annars er ótrúlega lítið að frétta, Svanný er að flytja til Frakklands sem sökkar frekar feitt ohh kannski springur Frakkland upp eða fer í stríð við einhvern þannig hún þurfi ekki að fara;) 

Tja síðan er ég bara að fara til Kanarí eftir tvo mánuði eða strax eftir áramót, er hægt að byrja árið betur, djöfull verður gott að chilla with my homies, lay back  J 

Þarseinustu helgi var staffadjamm á Nings og skemmtiatriðin stóðu fyrir sínu, en það er alltaf jafn merkilegt að fylgjast með hópnum því það þarf alltaf að vera ein sona fulla manneskjan og það klikkar aldrei hehehehhe Gugga var algert met, hún var eitthvað þvílíkt að spjalla/ rífast við einhvern aula og ég var að toga hana í burtu og hún skellti með andlitið á dyrakarmi meyddi sig en hélt áfram að rífast hehehe okay maður hefpi kannski átt að vera þar en ég þarf ekki nema að hugsa það því ég sé þetta alltaf fyrir mér og spring úr hlátriJ

 Nenni ekki að skrifa meira þannig vona að ekki líði langt þangað til næst  

Kv Magnusen


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 15:16:14 / Helgad

Hey there good looking

Mér var skipað að blogga þannig ég þori ekki annað en að henda nokkrum línum inn.... 

 Rhodos var snilld, hræðilegt að koma aftur í kuldann en ég pantaði mér aðra ferð til Kanarí í Janúar með mömmu, Fanney og Stefnir sem mun verða ennþá meiri snilld.... gott að hafa eitthvað að hlakka yfir.....:D

Var alla seinustu helgi að Sparsla og mála heima hjá Guggu, það var frekar fyndið, og margar góðar sögur af því... en já ég bauð Gugga að eyða jólunum með mér..... vil ekki að hún sé ein eitthvað vafrandi um Öskjuhlíðina þannig það er ákveðið;)

Síðan er mamma búin að breyta tölvuherberginu í lesstofu heheheh jebb móðir mín er farin að lesa bækur sem er mjög ólíkt henni... þessi snúlla, en hún vill ekki eiga bækur bara fá lánað hjá Kristínu og Steinari og skila þeim strax þegar búið er að lesa þær.:) 

Rhodos var snilld, hitti 2 kræklinga þar sem eru foreldrar gamla bekkjarbróðurs míns, sem á afmæli einmitt sama dag og ég.... þau sungu einmitt líka í karókí með okkur, sem er ekki frásögufærandi, við vorum greinilega ekki nógu full þannig stressið var frekar mikið úff, ég þurfti að taka Jóu með mér á sviðið en hún hló svo mikið að hún hætti dísuss erfitt að halda andliti með fullan sal af hlægjandi fólki en já never again nema ég verði helölvuð og muni ekkert ....:lol: 

Síðan eru það bara eyjar í næstu viku jeij, ætla að eyða smá tíma með minni yndislegu fjölskyldu, hlakka til að hitta bróður minn...:$ 

Jæja nenni ekki meir ætla að koma mér í sturtu og síðan er planið að redda sér sona snúru til að gera mína tölvu netfæra, ef ég get það ekki þá getur kannski Hörður og Auður kíkt í smá visit og fengið að skoða tölvuna mína :haha: 

Þangað til næst 

Kv:Magnusen


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 19:05:01 / Helgad

Djammin.... Bob Marley......

Hey peebs wassab??? Já ég er með tölvu en ekki nettengingu en Erna er í vinnu núna þannig ég ákvað að henda inn nokkrum línum hehe hún er samt búin að segja að ég megi alltaf fara í hana en mér líkar eitthvað illa við það..... 

En já við fórum á Hróaskeldu í byrjun júlí og var það algert ævintýri, hent út af pöbbanum og útaf hótelinu líka klukkan 5 um nóttina... En þetta var samt snilldarferð og frábær hópur. Og ekki má gleyma öllum tónleikunum shiiiit þvílíka snilldin wáw... 

Síðan eru 15 dagar þangað til við förum á Rhodos og þar verður sennilega mjög skemmtilegt, við Erna vorum að pæla að betla á aðalgötunni með að syngja og spila á hljóðfæri:J hehehehe smá að fríka þarna úti why not???? 

Síðan vil ég minna fólk á að við verðum með smá teiti á morgun hehehhe eins gott að Erla á 4 hæð eigi ekki tölvu hún væri kreisí að sjá mig auglýsa þetta hérna hheheheh en já og þið sem eruð skemmtileg megið endilega hafa samband og kíkja í smá djús........ Svanný mætir og það klikkar aldrei djammið með henni, ætla segja mömmu að ég hafi fundið hana úti og hvort ég megi ekki eiga hana heheheh 

En já sjáumst síðan á Þjóðhátíð í eyjumJ  

Kv Magnusen


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 22:45:36 / Helgad

Komin aftur ......

Wassap jebb kjellingin er á lífi og hefur það fínt í gettóinu....
En við erum samt í þannig blokk að ekkert nema fjölskyldufólk býr hér
þannig við Erna erum svörtu sauðirnir...

 Við lentum upp á kant við nokkra
íbúa hérna þegar við vorum nýfluttar inn en mín tók bara gribbuna á þau
og við erum öll ágætis vinir, allavena Erla og ég, hún býr á 4 hæð og er sirka
150 ára, algjör gribba en samt besta kjelling, með sona hund sem er hvítur og krullaður
ég man bara eftir sona hund þegar amma Bína var á lífi ég kalla hann því bara Bubba.

En já síðan er bara allt fínt að frétta við Erna höfum það ótrúlega gott hérna, notum frídagana
til að taka til og fara í bónus og sona, frekar skipulagðar, ég held að ef fólk sér okkur þá segir það
ohh koma þær sem skipta öllu í tvennt hehehe snilldin ein að vera nískur..... eða hagsýnn

Jæja ætla að skella í mig bjór.... ef þú ert einmanna og langar að gera eitthvað í kveld þá er partý heima
hjá mér, en þú verður að þekkja mig eða Ernu

Kv Magnusen


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 17:02:21 / Helgad

Fögnum stelpunni sem náði öllum prófunum.......

Litli snúðurinn minn hún Erna náði öllum prófunum og fékk meira að segja auka einingu fyrir skólasókn. Við verðum tvímælalaust að fagna því í kveld. En ég fór með henni áðan að sækja einkunnirnar og það var bara snilld, skólahljómsveitin að spila á þakinu fullt af flottum lögum þannig snilldardagur. Síðan skelltum við okkur í Smáralindina og beint á kaffihús og síðan skoðuðum við aðeins í búðir. En já þetta var bara snilld og vil ég óska Ernu til hamingju......:haha: 

Og ég vil óska Írisi Dögg og Arndísi Ósk til hamingju með daginn, finally jafngamlar mér;)

Við erum líka komnar með íbúð hérna í gettóinu, ég er alveg búin að finna mig hér því það er alltaf svo mikið action þannig maður fær liggum við allar fréttir fyrstur eða maður sér fullt af löggubílum hérna allavena....:D 

Já þannig hellingur að gerast, núna er bara að skella sér í shower og gera sig síðan til í rólegheitunum.....;) 

Bróðir minn kom með ótrúlega fallegt hálsmen handa mér frá útlöndunum, greyið hann slasaði sig samt, fékk lánshjólastól og lappirnar fóru sona undir stólinn og beygluðust, en ég held það sé samt í lagi með hann..... :cry: 

Jæja kveð að sinni, mín þarf að sjæna sig.:haha: 

Kv Magnusen


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 18:42:13 / Helgad

Thanx......

Góðan daginn krekkz...... Hjá mér er fínt að frétta og vil ég þakka öllum fyrir hlý orð og afmæliskveðjur. Það er ekkert spes að vera 23 ára en ekkert verra en að vera 22 ára sko...

 Í dag keypti ég ferð til Danmerkur og mun ég fara með Ernu frænkz og fullt af frábæru liði frá eyjum á Hróaskeldu, ég sem hef aldrei sofið í tjaldi.... heh en þetta verður bara snilld. Síðan ætlum við frænkurnar að fara eftir helgi og klára að borga Rhodos ferðina vúbbídú það er ekkert smá mikið að gerast hjá manni og djöfull er ég ánægð að Erna er hluti af því jeij:P 

Planið um helgina er nottla að kíkja út eða allavena á Laugardaginn, það er alltaf svo mikil stemming í bænum á júró, maður hreinlega getur ekki sleppt því. ;) 

Bróðir minn er að fara til Manchester á morgun að horfa á einhvern bikarleik og ég sagði honum að kaupa handa mér afmælisgjöf úti,,,, hann eitthvað ókey, ég alveg já og ekki einhvern man utd bol eða bolla, það væri eitthvað svo týpískt hann að kaupa styttu eða eitthvað.....

En ég sannfærði hann um að kaupa eitthvað sætt og ekki tengt fótbolta:haha:

En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra heyri í ykkur seinna.... 

Kv. Magnusen


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 09:23:05 / Helgad

GÖMUL KELLING........

 

 

ÉG Á AFMÆLI Í DAG:haha::lol:8|

JIBBÝ JEI

KV HELGA DÓRA

PS: ARNDÍS ÓSK TAKK FYRIR AÐ BLOGGA FYRSTU KVEÐJUNA:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 00:11:02 / Helgad

Fríhelgi framundan.......

Góða kveldið krekkz......

Já á maður að ræða eitthvað þessa árshátíð eða?????

Hún tókst bara snilldarlega og allir mjög stilltir.... en djöfull var drukkið shiiiiitt.... Ég man alveg eftir mér en ég man hin vegar ekki eftir neinum samtölum, ég veit ég vara að tala við fullt af liði en ég man ekki um hvað... það er kannski spurning hvort maður drekki minna næst.:) 

En já við Erna bjuggum til myndband þar sem við gerðum grín að starfsfólki og yfirmanni Nings og það heppnaðist bara frábærlega. Síðan var búinn til texti um okkur Höllu Vaktstjórana og síðan var ég látin taka þátt í dansstopp......... Ég var ákveðin að fela mig undir borði þegar myndbandið yrði og nei nei hendið bara meiri athygli í mig ég sver það fólk heldur sennilega að ég sé sjúklega athyglissjúk. :lol: 

Síðan er bara fríhelgi framundan jibbý það er spurning hvað maður gerir af sér....8| 

Daginn eftir árshátíðina fór ég til Auðar að sækja draslið mitt en lenti á geggjuðu spjalli og enduðum á því að rotast í sófanum hennar sem er nottla bara snilld grrrrrr........:haha: 

Jæja kids veriði í bandi því ef ekki þið hver þá????? 

Kveðja Magnusen:P


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 33849